Ađalvalmynd

Auglýsing

HM í fullu fjöri!!!

25. janúar 2007 klukkan 19:32
Jesús ef púlsinn er ekki alltaf í 200 slögum þessa dagana þá veit ég ekki hvað!!! Ísland er sko að gera góða hluti eins og er, leikur í dag við Pólverja og vonandi  vinnum við þá, þá verður eftirleikurinn auðveldari fyrir okkur!!! Minn besti leikmaður í Ísl.liðunu er tvímælanlaust Alexander Peterson, berst í alla bolta og stendur alltaf fyrir sínu!!Glottandi og ekki skemmir það fyrir að hann er algjör sjarmör í þokkabótKoss 

Ég verð samt að segja frá því að strákarnir í bekknum mínum buðu mér með sér í póker á þriðjudaginn og það fór nú bara þannig að ég RÚSTAÐI þeim...hehehe og græddi heila 14 BJÓRA kemur sér vel fyrir konuferð og þorrablót sem er framundanHlæjandi Kemur strákar!!!!!

Halli og Dússi vilja sennilega ekki heldur muna eftir því þegar ég spilaði við þá póker í fyrr minnir mig og vann af þeim allan peningin???Brosandi kannski maður ætti bara að leggja þetta fyrir sig og hætta að vera alltaf að streða við að vinna með skólanum..heheGlottandi

Annars er ég bara að vinna og æfa um helgina....væri aleg til í að vera heima og ríða út en ég kem heim á miðvukudaginn...jibbí!!!

Jæja skrifa ekki meir í bili...SÍ JÚ!!!

Lítiđ um ný tíđindi!!!

22. janúar 2007 klukkan 23:11
Jæja góðir hálsar!!!
Það er nú ekki mikið að frétta af mér þessa dagana, ég var heima frá miðvikud.-sunnudags og var það voða ljúft, hefði samt viljað hafa aðeins betra veður til útreiða. Kíkti nú aðeins í Grafarkot og reið þar aðeins inní skemmu og Hedda kenndi mér fullt af nytsamlegum hlutumBrosandi Ég fór líka á smá þorrablót í hesthúsinu okkar og var það bara sérdeilisprýðilegt!!!

Inga Þórey og Heiðar voru svo í pössun hjá okkur á laugard. alltaf jafn gaman að hafa þau....Inga kom líka með einn gullmola: Hjördís hvort segir maður krabbBEIN eða krabbaMEIN??? Já ég átti ansi erfitt með að halda hlátrinum inniHlæjandi

Svo fór ég og náði í hana Reisingu og er hún nú komin inn þessi elska feit og fín...get bara ekki beðið eftir að fara heim næst og fara á hana, gaman að sjá hvað hún man síðan síðast!!! SpennóGlottandi

Jæja annars erum við nú mest í sundlauginni með honum Haffa hérna á Laugarvatni....og í íþróttahúsinu þess á milli!!!

Jæja verð að drífa mig á körfuboltaæfingu...hittumst heil

Skólinn,karfan,fótboltinn og Hrafnista!!

13. janúar 2007 klukkan 16:07

Já það má eiginlega segja að það sé bara allt byrjað á fullu!! Skólinn byrjaði á fimmtudaginn. Mér líst bara nokkuð vel á þessa önn sem er að hefjast. Við verðum í ca. 70 tímum í sundlauginni og verðum við líka í verklegu í íþróttahúsínu í t.d. körfu, fótbolta,handbolta,frjálsum, dansi og einhversskonar tjáninguSvalur Það verður eitthvað minna um þetta bóklega en nóg af verkefnum samt og er strax búið að setja á okkur 2!!!

Svo er ég farin að geta æft aftur með Hamri eftir jólafríið sem er bara gaman..ég fæ svo leikheimild þann 4.febGlottandi Á sunnudaginn erum við nokkrar stelpur úr bekknum mínum að fara á fórboltaæfingu með Leikni í Reykjavík og ætlum sennilega að spila með þeim í deildarbikrnum...!!

Svo byrjaði ég að vinna á Hrafnistu á föstudaginn og er að vinna í dag og á morgun, mér líst bara ágætlega á þetta og get fengið næga vinnu með skólanum, guð sé lof vegna mikla útgjalda á bílnum mínumÖskrandi

Jæja best að halda áfram að vinna kaffið er búið...hittumst heil....

P.s. veit einhver nákvæma dagsetningu á þorrablótinnu á HVT?Brosandi

Vćri alveg til í ađ eiga einn svona:)

06. janúar 2007 klukkan 01:18
Sælt veri fólkið svona á nýju ári!!!
Hvernig leggst árið í ykkur? það leggst bara ágætlega í mig eins og erGlottandi Ég var í fríi í dag og var meira og minna bara í hesthúsinu að stússast, vegurinn er alveg ísilagður og því enn skemmtilegra að ríða út. Ég endaði svo daginn á að fara útí Grafarkot, og endaði dagurinn sko ekki illa því ég skrapp í einn reiðtúr með Fanney og fékk ég að prófa gæðinginn hann Tvinna....JESÚS hvað hesturinn er góður...mig langar í einn svonaBrosandi Ég  er næstum búin að ákv. að Gáta fær að vera hjá honum næsta vor. Þetta verður nefnilega síðasti veturinn hennar Gátu minnar inni því þessi essska fær að fara í folaldseignir í vorGlottandi

Við Fanney horfðum svo á video síðan á vistinni á króknum, við Víðir að leika gömul hjón, Hamstur dauðans og svonna margt skemmtileg...oohhhh hvað maður saknar þessa tíma.Brosandi

Svo eru nú smá sorgarfréttir af bílnum mínum eins og alltaf!!! þetta fer að vera fastur liður hérna á blogginu mínu að tala um bílinn minn!!! Jæja en hvað um það hann er enn og aftur á verkstæði, eitthvað gírkassavesenÖskrandi held ég reyni bara að losa mig við hann og fá mér nýjann þetta bara gengur ekki, þvílíkur og annar eins kostnaður!!!!ARRRRRRRRRRGGGG

Jæja ætla að fara að skella í mig einni föstudagspitsu...njomm njomm

Gamlársparty!!!!!

31. desember 2006 klukkan 23:49
Þá er árið senn á enda og bara búið að vera alveg fínt árGlottandi

Ég vil bara óska öllum gleðilegs árs og farsæls komandi árs....og takk fyrir það gamla...Hittumst svo spræk á áramótadiskói...samkvæmt könnuninni þá eru flestir að fara þangað...ekki nema Ína sé búin að kjósa bara..heheBrosandi Hittumst heil......í féló

Hjöddan kveður gamla árið

Komdu međ mér í gamlársparty!!!!

22. desember 2006 klukkan 16:06
Jæja það er allt að gerast á tanganum þessa dagana!!!!
Ég er búin að vera að vinna á fullu síðustu daga ásamt því að klára að skrifa jólakort og pakka inn jólapökkum. Gáta mín er komin inn alveg ofsa loðin og fín, get bara ekki beðið eftir að það verði búið að járna hana svo ég geti farið að fara á bakGlottandi  Hrund og Ingveldur eru báðar komnar heim og það var sko mjög gaman að hitta þær loksins...stelpur við eigum svo eftir að taka nokkur tjútt milli hátíðanna...Ullandi

Það hafðist svo í gær að fara í SÖRUbaksturinn ógurlega...jamm það gekk....en samt ekki eins vel og í fyrra...við Guðrún bara skiljum þetta ekki!! Það heyrðist oft í okkur í gær "ég bara skil þetta ekki mig minnti að þetta hafi verið svona í fyrra"Óákveðinn En þær tókust á endanum og eru ofsa góðar..njomm njomm!!

Ætla svo ekki allir að mæta í félagsheimilið um áramótin???? er ekki kominn tími til að fólk hittist á sama staðnum og hafi gaman?
Svo á Þinghúsið nú að vera opið um helgina og eitthvað milli hátíðanna þannig að fólk getur gert sér glaðann dag eða kvöld:)

Til tilbreytingar ætla ég að gera nýja skoðanakönnun endilega takið þátt....
Kveð að sinni
Hjöddan

Jólafríiđ!!

15. desember 2006 klukkan 04:25
Jæja gott fólk þá eru prófin búin þessa önnina og jólafríið tekið við. Ég kláraði seinasta prófið á mánudaginn og gekk það bara fínt held ég!!! Við bekkurinn fórum í bústað og djömmuðum duglega þarGlottandi Ég varð reyndar fyrir smá óhappi á leiðinni í bússtaðinn eða réttarasagt bíllinn minn það var nefnilega þannig að það var mjög mikill snjór á veginu og hálka og ég var að mæta bíl og sennilega höfum við bæði verið frekar nálægt hvort öðru sem varð til þess að hliðarspeglarnir skullu saman og af, ég er nánast hætt að kippa mér upp við það ef það kemur eitthvað fyrir bílinn minn þessa dagana þar sem það er nýbúið að bakka á mig hann er nýbúinn að vera á verkstæði að láta kíkja á gírkassa helvítið!!! þetta fylgir því víst að eiga bíl!!! ég verð sennilega að gefa Póla litla spegil í jólagjöf þetta árið!!!

En allavega þá er ég komin heim í sveitasæluna og vinna tekin við ásamt jólaþrifum og öðrum undirbúningi....sem minnir mig á það að ég er ekki byrjuð á jólakortunumÞögull sem gröfin

Ég þarf svo að renna í bæinn um helgina með Hafdísi og klára jólagjafainnkaupin og svo er seinna próflokadjamm hjá bekknum mínum og er stefnan tekin á party hjá Hildi Byssu og svo á að skella sér í bæinn og mála bæinn rauðann svona rétt fyrir jólin...skárra væri það núUllandi


Læt fylgja mynd af mér og hildi frá því á mánud.:O)

Jæja hittumst heil....gangi ykkur öllum vel að klára að undirbúa jólin og hafið það gott:)

MYGLUĐ!!

08. desember 2006 klukkan 05:10
Já ég get ekki sagt annað en ég sé að mygla yfir bókunum þessa dagana!!Púff hvað ég verð feginn á mánudaginn þegar þessu er lokið!!!!!

Hef ekkert meira......hlakka bara til í að komast í jólafrí!!!
Hittumst vonandi heil á geðiÞögull sem gröfin

Lćkningar viđ timburmönnum..jjjeiijjj Hvađ er rétt og hvađ ekki????????

04. desember 2006 klukkan 00:40
Ákvað aðeins að létta mér lundina í prófalestrinum og skella smá fróðleiksmolum um þynnkuGlottandi

1. Afréttari: Tefur aðeins það óumflýjanlega. Ein af ástæðum þess að timburmenn eru svo óþægilegir er að lifrin er enn að vinna úr afgangs eiturefnum sem koma frá alkóhól efnahvörfum. Þegar við drekkum meira alkóhól eftir fillerí getum við dregið úr áhrifum timburmanna í fyrstu en það gerir ástandið bara verra vegna meira álags sem við leggjum á lifrina. = Virkar ekki.

2. Brennt ristað brauð: Byggist á vísindalegri staðreynd. Leyndarmálið á bak við lækninguna eru kolefnin (carbon) í brennda brauðinu. Kolefnið virkar eins og sía í líkamanum sem laðar að sér afgangsafurðir sem verða vegna efnaskipta alkóhóls. Kolefni er oft notað af læknum á bráðamóttökum við áfengiseitrun. Þá er kolefnisblöndu dælt í maga fólksins til að koma í veg fyrir dauða af völdum áfengis. Chaser og Sob'r-K hangover Stopper virka á þennan hátt og er selt í sumum apotekum (veit ekki með hvort það sé þannig bara í USA eða hvort þetta eða eitthvað svipað er selt hér á Íslandi, verðug könnun :) ). Kolefni er megin innihaldsefni í þessum vörum. Kolefni virkar vel bæði sem forvörn gegn timburmönnum og daginn eftir drykkju. = jeyjj gaman gaman, þetta virkar :)

3. Svart kaffi: Eins og við vitum öll er mikið af koffeini í kaffi. Koffein er örvandi og virkar þannig gegn þreytunni. En þegar koffeináhrifin fjara verður fólk jafnvel miklu þreyttara en það var áður. Það getur hjálpað með höfuðverkinn vegna þess að koffein er "vasoconstrictor"(blink blink, sympatísk örvun :) ). Þetta virkar sem mótvægi við áhrifum alkóhóls sem veldur æðavíkkun og höfuðverk. En koffein er líka þvaræsiefni eins og alkóhól þannig að of þurr manneskja getur misst meiri vökva og þannig magnað upp áhrif timburmanna. = Í heildina er kaffi ekki gott ráð gegn timburmönnum.

4. Steiktur eða feitur matur: Feitur eða steiktur matur getur hjálpað til áður en drykkja á áfengi hefst en veldur líklegast bara óróleika í maga daginn eftir. Allur matur áður en farið er á fillerí hjálpar til við að koma í veg fyrir timburmenn en feitur matur er sérstaklega góður. Feitur matur sest innan á magann og hægir þannig á frásogi á alkóhóli í blóðrásina. Áhrif áfengisins eru kanski lengur að koma en þetta gefur líkamanum meiri tíma til að vinna úr fylgiafurðum áfengis. Fólk frá Miðjarðarhafinu drekkur matskeið af ólífuolíu fyrir áfengisneyslu. Einnig getur át á léttum mat eins og ávöxta þeytingi veitt orku og dregið úr sumum einkennum timburmanna sem orsakast af electrolytaójafnvægi sem orsakast við þurrk (dehydration). = Virkar vel sem forvörn en ekki daginn eftir :)

Luma svo á nokkrum í viðbót hendi þeim seinna inn...HEHESvalur

Ótrúlegt en SATT!!

23. nóvember 2006 klukkan 23:22
Já bræður og systur!!! Önnin hér á Laugarvatni er næstum á enda komin.....er maður eitthvað að trúa því!!!! En það er s.s. bara einn dagur eftir af skólanum og svo kemur 2 vikna upplestrarfrí fyrir 2 próf!! SWEET!!Glottandi þannig að það er engin afsökun að læra ekki vel fyrir þessi próf og hana nú!!!! Brosandi
Það sem stendur uppúr þessa önnina er:

* Busunin...Snilld....tók ekki nema 2 vikur!

* Nýnemadagurinn...vorum með flottustu búningana...og ball         sem engin man eftir eða vill ekki muna
Glottandi

* Útivistarferðin...var í betri hópnum og vorum við ekki eins         blaut og seinni hópurinn...hehe...svo vorum við þrumurnar         líka saman og hvað er nú betra en það???:O)

* Fékk vinnu á Hótel Selfossi um helgar með skólanum það er     ágætt!!

* Eitt stykki Skítamóralsball á Selfossi...fékk að sjá alla                 HNAKKANA!!! Púff það var rossalegt!!

* Er að æfa fótbolta með Laugdælum og búnar að spila einn        leik. Við erum búnar að hafa 3 þjálfara en vonandi er Sindri        komin til að vera..

* Er að æfa körfu með Hamri/Selfoss...það er geggjað gaman!!!

* Akademían í Keflavík kom í heimsókn til okkar og kepptu við      okkur í íþr. og auðvitað unnum við!!

* Próf og verkefni eru búin að ganga vel í vetur og er ég bara        nokkuð sátt með þetta allt, vonandi ganga þessi 2 sem eftir     eru bara eins velSvalur

Jæja þá er bara að klára það sem eftir er af þessari önn með stæl og mæta svo heim í sveitina og gera allt vitlaustHlæjandi

Hlakka til að hitta alla um jólin!!



Prófíll

  • Nafn: Hjördís Ósk Óskarsdóttir
  • Stađur: Hvammstangi
  • Heimilisfang: Klapparstígur 9
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í íţróttafrćđi í Kennaraháskólanum á Laugarvatni
  • Hjúskaparstađa: Laus og liđug, gerist ekki betra eđa hvađ???
  • Um mig: Ofvirkur íţróttafíkill sem hefur alltaf of mikiđ ađ gera!!! Elska sveitalífiđ og hestana mína og ađ spila fótbolta.
  • Annađ: Geri ekki neitt fyrir neinn nema gera eitthvađ....;)

Könnun

Farin ađ hlakka til jólanna??

Ágćtt ađ skođa