Ađalvalmynd

Auglýsing

Jesús og goss bara 5 dagar í skólann!!!!

22. ágúst 2006 klukkan 15:19
Já sumarið er sko aldeilis búið að fljúga áfram!! Og góða veðrið er rétt að koma núnaHissa
En svona þegar ég hugsa til baka þá er þetta búið að vera mjög skemmtilegt sumar, reyndar er ég ekki búinn að ferðast neitt eða svoleiðis eina útileigan sem ég fór í var á Landsmót hestamanna og það var æðiSvalur

í gær þá var ég í heyskap með Heddu og Indriða og var ég að garða í fyrsta skipti og mér fannst það bara gaman sko þó svo að sum túnin hefðu verið svolítið holótt eða frekar mjög holótt ég gjörsamlega hoppaði og skoppaði út um allan traktorSaklaus það var svo gaman að heyja að ég gjörsamlega gleymdi að ég átti að fara á næturvakt klukkan 22 og ég fattaði það ekki fyrr en ég leit á símann minn um 22:30 þá var búið að hringja í mig úr vinnunniHissa svona er þetta bara mannleg mistök!!! en við náðum allavega að klára nánast að heyjaUllandi

Jæja það þýðir nú ekkert að vera að hanga í tölvunni í þessari blíðu besta að fara út að gera eitthvað.....

Hjöddan kveður

Allt ađ ske

18. ágúst 2006 klukkan 02:18
Ég bara gleymdi að segja frá því að á sunnudaginn þá skelltum við mæðgur okkur að horfa á aflraunakeppnina að Bjargi mjög gaman að þessu. Ég var plötuð til að vera með vegna þess að það vantaði 1 konu til að það yrði slétt tala.....var ekki alveg á því i fyrstu en mútta alveg óð og fór og skráði migÓákveðinn En mín tók þátt og lenti í 3 sæti..ágætis árangur það miðað við fyrsta skiptiSvalur
Setti meira að segja myndir...Ullandi

Úrslitin urðu þessi:

Konur:
Ella á Bergstöðum
Bogga hans Mása
Hjöddan

Karlar:
Páll frá Finnmörk
Jói frá litlu-Hlíð
Eiríkur Steinars.

Komnar myndir af ballinu...

17. ágúst 2006 klukkan 04:12

Jæja þá er ég loksins orðin svo tæknileg að ég er farin að setja myndir inná síðuna mína og ekki seinna vænna, en ástæðan er einfaldlega sú að ég var að kaupa mér fartölvu:)

En allavega þá eru þetta myndir af 17.helgarballinu í Víðihlíð þar sem var frekar slæm mæting en ágætis myndir þrátt fyrir allt;)

Njótið vel

Hjöddan kveður

Kvennareiđin er afstađin

14. ágúst 2006 klukkan 14:26

Kvennareiðin var bara nokkuð góð og skemmti ég mér bara vel fyrir utan að þessi leið var kannski alveg í það lengsta þar sem var lagt af stað frá Barkastöðum klukkan 13:30 og ekki komið á laugarbakka fyrr en klukkan 20:00 og þá átti maður eftir að redda hestunum og fá sér grill og svonna....að mínu mati fannst mér þetta alveg í lengsta kanntinum og alls ekki eins hesta leið sá mjög eftir því að hafa ekki tekið annan hest með mér og aumingja konurnar sem fara bara á hestbak 1 sinni á ári botninn á þeim hefur örugglega verið orðin ansi aumur!!!Þögull sem gröfin og margir hestarnir ekki í sínu besta formi alveg búnir á því!!
En það var fyrir öllu að þetta tókst vel og enginn datt af baki ekki að mér vitandi allavega er það nokkuð dömur???

Ég ákvað að skella mér á ball og fórum ég,Bjögga,Guðrún,Hrund og Jóhanna í partý til Önnu Maríu og Köru og svo var brunað á ball!! við urðum fyrir miklum vonbrigðum þegar að við komum þar sem það var nánast ekkert af fólki og það sem var þarna var eiginlega bara 16 ára unglingarHissa en við létum slag standa og helltum bara meira í okkur og svo var bara dansað fram á nótt, það bjargaði því líka að VON var bara helv. góð, jú og Hrund þú varst líka góð með þeimUllandi Myndir af reiðinni og ballinu koma síðar!


Annars er sumarið bara að verða búið og það styttist óðum í skólann.....

Hjöddan kveður

Ađeins ađ fikta

09. ágúst 2006 klukkan 19:06

komiði öll sæl og blessuð!!!

Jú verður maður ekki að fylgja tískustraumunum í þessu eins og öðru!! ég ákvað allavega að prófa þetta blogg...sjáum til hvernig það gengur!!!
Ákvað að hafa síðuna bleika í tilefni kvennareiðar sem er á laugardaginn og svo ball með Von um kvöldið!!
Hvað segiði dömur er ekki komin stemming fyrir laugardeginum??Svalur

Prófíll

  • Nafn: Hjördís Ósk Óskarsdóttir
  • Stađur: Hvammstangi
  • Heimilisfang: Klapparstígur 9
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í íţróttafrćđi í Kennaraháskólanum á Laugarvatni
  • Hjúskaparstađa: Laus og liđug, gerist ekki betra eđa hvađ???
  • Um mig: Ofvirkur íţróttafíkill sem hefur alltaf of mikiđ ađ gera!!! Elska sveitalífiđ og hestana mína og ađ spila fótbolta.
  • Annađ: Geri ekki neitt fyrir neinn nema gera eitthvađ....;)

Könnun

Farin ađ hlakka til jólanna??

Ágćtt ađ skođa