Ráslistar fyrir íţróttamót
07. ágúst 2009 klukkan 23:46
|
Ráslisti |
|||||
|
Fimmgangur |
|||||
sofa, ćfa,éta,lćra,ćfa,éta,lćra, sofa.....09. febrúar 2009 klukkan 22:09
Já sælt veri fólkið!!
Er ekki alveg búin að vera að nenna að sinna þessu bloggi uppá síðkastið og liggur næst við að hætta þessu bulli! En allt gengur sinn vanagang hérna í kópavoginum, lokaritgerðin er á góðu róli og lítur allt út fyrir gott páskafrí En lokaritgerðin okkar Siggu fjallar um það hver hugmyndafræði íþróttaálfsins sé til 4-5 ára leikskólabarna með tilliti til hreyfingar og hvort sú hugmyndafræði skili sér í starfi leikskólanna!Annars er rútínan bara svona hjá mér sofa, æfa,éta,læra,æfa,éta,læra, sofa.....Spennandi ekki satt ![]() Ákvað að látta þessa rullu fylgja með..... Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana
Hittumst heil á húnvetnsku mótaröðinni...ÁFRAM VÍÐIDALUR!!!
AHA Ó NEI BARA AĐ HANN HANGI ŢURR.......02. janúar 2009 klukkan 18:26
TIL HAMINGJU MEÐ JÓLIN, ÁRAMÓTIN OG ALLT ÞAÐ!!!!
![]() Nú er nýtt ár gengið í garð og taka við margar nýjar áskoranir..... ![]() Jólafríinu fer nú senn að ljúka og fer hversdagsleikinn að taka við, það verður bara ansi ljúft held ég..... Síðasta misserið í skólanum hjá mér og bara allt að ske!!..verst að maður nennir ekki alveg að vera að fara að skrifa þessa lokaritgerð ![]() Við erum komin með íbúð í Kópavoginum og flytjum við á morgun eða hinn, endilega kíkið í kaffi og kleinur ef þið eigið leið hjá, þetta er bara rétt hjá Smáralindinni ![]() Jæja kæru vinir hef ekkert meira að bulla í bili.....spurning um að hittast í körfu á morgun, hvað segiði um það?? Er ekki í neinu jólaskapi!!!23. desember 2008 klukkan 19:34
Ég get svo svarið fyrir það að jólin eru á morgun og mér finnst bara eins og jólin séu bara ekkert að koma!!!
![]() Já jólin verða allt öðruvísi en vanalega vegna þess að mamma er fyrir austan að vinna, það er sennilega skýringin á því að ég sé ekki komin í jólaskap!! Nenni engan vegina að blogga en er svona bara að gera þetta fyrir Hafdísi því hún var eitthvað að kvarta!! Annars gerði ég möndluísinn í dag og hjálpaði Kiddý aðeins að þrífa..... Æji finnst bara allt leiðinlegt núna.....nenni ekki að fá jólin og vil fara að hlaupa!!! Takk og bless!! Já og gleðileg jól þið öll og hafið það gott yfir hátíðirnar!! Já ţađ fer ađ verđa mánuđur síđan síđast!!!10. desember 2008 klukkan 23:13
Eigum við að ræða það eitthvað...eigum við að ræða það eitthvað....eigum við að ræða það eitthvað!!
Já eigum við að ræða það eitthvað hvað ég nenni ekki að vera að fara í próf 15.des, eina prófið sem við förum í í desember og því var skellt á síðasta prófdag..djöfulsins s...pakk!! EEEEEENNNNNN ég er s.s. að fara í næringarfræðipróf á mánudaginn og ætla að hengja mig yfir henni hérna á laugarvatni yfir helgina!! Þar sem fæðuráðleggingar Lýðheilsustöðvar er stór hluti af prófinu þá ætla ég að skella hérna inn fæðuráðleggingunum 12!! 1. Höfum fjölbreytni fæðunnar í fyrirrúmi 2. Grænmeti og ávexti daglega og það er mælt með 5 á dag ca.200 g af ávöxtum og 200 g af grænmeti 3. Fiskur amk. 2x í viku hann er próteinríkur, inniheldur ómega-3 og joð sem er í fáum matvælum 4. Gróft brauð og annar trefjaríkur matur, skiptir miklu máli því trefjar gefa mikla mettunartilfinningu og við verðum fyrr södd og borðum minna 5. Fituminni mjólkurvörur því mjólkurvörur innihalda mettaða fitu sem er ekki holl viljum hafa minna af henni 6. Veljum olíu eða mjúk fita í stað harðrar,hörð fita eykur m.a. líkur á hjarta og æðasjúkdómum 7. Salt í hófi, salt hækkar blóðþrýsting og getur valdið bjúgsöfnun 8. Þorskalýsi eða annar D-vítamíngjafi, fáum annars bara D-vítamín úr sólinni og hún er ekki oft á lofti á Ísl. 9. Vatn er besti svaladrykkurinn 10. Stuðlum að heilsusamlegu holdarfari 11. Borðum hæfilega mikið,pössum uppá skammtastræðirnar og orkuþörfina 12. Hreyfum okkur daglega eða amk. 60 mín á dag!! Einnig er æskileg samsetning fæðunnar þannig að kolvetni skal vera 50-60% prósent af orkunni og þar af á viðbættur sykur að vera minni en 10%, fitan skal vera 25-35% og þar af á mettuð fita að vera minni en 10% og svo skal prótein vera 10-20% af orkunni Þar hafið þið það....það er ekki svo flókið að borða hollan mat!! ![]() Ef það eru einhverjar spurningar sendið þær bara á hoo11@hi.is mun sennilega hafa svör við öllu næringarfræðitengdu næstu daga....hehe ![]() Annars var þetta bara svona til að létta mér lesturinn að rita þessa punkta hérna inn og náttúrulega er þetta svaka skemmtileg lesning!! ![]() Jæja er hætt þessari þvælu og ætla að lesa smá fyrir háttinn.... Eitt enn þið sem vitið ekki hvað þið eigið að gefa mér í jólagjöf þá langar mig í þessa cintamani peysu...kostar ekki nema?????? MARGA peninga
Hittumst heil eftir helgi!!! Vettvangsnáminu lokiđ og allt hitt tekur viđ!!23. nóvember 2008 klukkan 17:01
Að þessu sinni ætla ég að henda inn snöggu punkta bloggi!
* Kláruðum vettvangsnámið á fimmtudaginn og enduðum á kærkominni slökun í baðstofunni í Laugum á föstudaginn * Það er geðveik verkefnatörn í skólanum og nær maður varla andanum á milli verkefna ![]() * Erum að fara að kynna lokaverkefnið á þriðjudaginn * Skila 3 ritgerðum/skýrslum þann 3.des * Kynning á vettvangsnáminu 1.des * Og ssssssvvvvoooooooooo hefst prófalestur fyrir næringafræðiprófið sem er þann 15.des! * Að þessu loknu verð ég komin í langþrátt JÓLAFRÍ ![]() * Eitt sem er samt ekki eins skemmtilegt við þessi jól og öll hin er að elskulega móðir mín verður ekki með okkur um jólin hún er að vinna öll jólin í þessu fokkans álveri og verður hjá Jonna bróður sínum á aðfangadag!* Þessi jól verð ég hjá bestu stóru systir minni og fjölskyldu.....það verður svona NÆST því að vera eins og hin jólin!! * Hafdís og bumban ætla að vera hjá Vigga tigga tá á Blönduósi en þau koma nú vonandi eitthvað til mín á milli hátíðanna ![]() * Nóg um þetta væl og skæl!! * Langar rosa mikið á hestbak þessa dagana...geri það vonandi um jólin.... * Takk og bless Vettvangsnám hafiđ og ţrekmeistara lokiđ....11. nóvember 2008 klukkan 20:20
Sælt veri fólkið!!! Kannski nokkur orð um Þrekmeistarann sem var síðustu helgi!!! Slæmu fréttirnar eru þær að ég skeit á mig í einstaklingskeppninni...varð í 7 sæti á tímanum 20:17 sem er hræðilegt þar sem ég hef verið að fara á mun betri tímum á æfingum!!! ![]() Skeit á mig akkúrat hér....hehe ![]() Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að við í BC Súper urðum í 3 sæti í liðakeppninni og var mjög mjótt á munum á fyrstu 3 sætunum!! Hér erum við ![]() Talið frá vinstri: Erla Hrönn, Hildur Edda, Arna Mekkín og Kristín Björg og ég skassið sjálft!! Uuuuu fleiri fréttir!! Það er andskotann ekkert að frétta...bara allt á fullu í skólanum og vettvangsnámið fer vel af stað og líst okkur rosalega vel á þetta allt saman. Fáum líka að æfa frítt á öllum World Class stöðvunum í Reykjvík í þessar 2 vikur...ekki slæmt það....annars er það nú samt bara Boot Camp sem virkar best ![]() Er að fara að taka þátt í Poweradehlaupinu á fimmtudaginn sem er 10 km hlaup um Elliðárdalinn ![]() Jæja best að halda áfram að læra Góðar stundir kæru vinir!! Brjálađ ađ gera!!!!06. nóvember 2008 klukkan 23:18
Ákvað að skella inn hér nokkrum línum!!
* Það er brjálað að gera í skólanum....hvert verkefnið á fætur öðru og varla tími til að anda inná milli!! * Vettvangsnám að byrja í næstu viku og verðum við Hildur Edda í World Class í Hafnarfirði í 2 vikur og endum á dekurdegi í baðhúsinu ![]() * Ætlum að prófa að vera með í Cross fit í 2 vikur sem er sambland fimleika, frjálsa og olympískra lyftinga...hljómar vel ekki satt?? * Er svo að fara að keppa í ÞREKMEISTARANUM á laugadaginn og keppi ég bæði í einstaklingskeppni og liðakeppni!! * Vonandi á eftir að ganga vel...en einstaklingskeppnin gengur út á það að framkvæma eftifarandi...svona fyrir áhugasama ![]() Hjóla 1,5 km, róa 500 metra, 50 niðurtog með 30 kg, 60 fótalyftur, 30 armbeygjur, 100 kassauppstig með 5 kg í hvorri hendi, 60 kviðkreppur, 40 axla rpressur með 5 kg í hvorri hendi, hlaupa 800 metra í 10% halla og taka svo 25 kg í bekk 40 sinnum!!!!!í einstaklingskeppninni framkvæmir maður allar þessar greinar hverja á eftir annarri án þess að stoppa og á maður að ná sem bestum tíma!! Í lið þá tekur hver og einn 2 greinar!! Já já vonandi kemur maður lifandi heim á laugardaginn, og búin að massa þessa keppni ![]() Annars var lítill fugla að hvísla að mér að það væri leiksýning í Ásbyrgi á laugard.kvöldið ætlar fólk að kíka??? Hittumst heil kæra fólk....ætla að reyna að hvílast svona rétt yfir blá nóttina
Til hammó međ ammó Hafdís mín!!27. október 2008 klukkan 09:22
Fyrir 22 árum þann 27.október kom í heiminn lítið rauðhært gerpi, mikið var maður nú ánægður að vera búin að eignast svona sæta systur
Þessi hamingja dugði nú ekki lengi og rifumst við eins og hundur og köttur um leið og þetta litla dýr gat opnað munninn, þess á milli vorum við nú samt rosalega góða vinkonur Meira að segja er orðið ansi langt síðan að við höfum rifist Hafdís....kannski orðnar nánast fullorðnar líka!! í dag erum við ofsa góðar vinkonur Og mikið ofboðslega hlakkar mig til að sjá hana í mömmuhlutverkinu enda verður hún alveg frábær mamma þessi elska!!! Hafdís mín innilega til hamingju með daginn, vonandi áttu eftir að eiga góðan dag ![]() Eninga meninga mig vantar bara peninga!!!08. október 2008 klukkan 20:53
Já sæll...farð´úr bænum!!!
Stóðréttarhelgin í víðidalnum liðin þetta árið og var þetta alveg sniilllld!! Fór með Fönnzunni, Flame bónda og Eydísi hans Tryggva í gröf(bara svona til að hafa eitthvað hjá þér eydís mín:)) í valdarás og þar átum við í gamla skrýtna húsinu hjá gömlu skrýtnu konunni með öllu fulla og skrýtna fólkinu ![]() Guddan var svo góð að lána okkur hesta alla leið út í rétt og varð úr þessi hin mesta skemmtun ![]() Fórum í súpuna á Litlu-Ásgeirsá og var étið og dansað þar fram eftir kveldi.... Enduðum svo á skemmuballi á Kolugili sem var rosa gaman líka ![]() Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur og gengu réttarhöld eins og í sögu.... Haldið var svo fyrsta og eflaust ekki það síðasta party á Hrísum og ótrúlegt en satt þá fór bara vel á okkur þar og gátum við drukkið heil mikið og sungið ![]() Fórum á ballið og það var sko FJÖR!!!! Kenndum sixties sturtudansinn Hatturinn kom sko öllum í stuð.....sumir farnir að rífast um hann hehehe ![]() já og dagurinn eftir var ekki eins góður...PUNKTUR!!! Kreppan komin.....Púff Læt þennan brandara fylgja ![]() An American said: *"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash."* *And an Icelander replied: *"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash". Er að fara í kanóferð um helgina og eigum við að gista í tjaldi....Plís óskið mér góðs gengis ![]() P.s.Komment takk fyrir Prófíll
KönnunÁgćtt ađ skođa |
En lokaritgerðin okkar Siggu fjallar um það hver hugmyndafræði íþróttaálfsins sé til 4-5 ára leikskólabarna með tilliti til hreyfingar og hvort sú hugmyndafræði skili sér í starfi leikskólanna!






hún er að vinna öll jólin í þessu fokkans álveri og verður hjá Jonna bróður sínum á aðfangadag!




